Rödd Fernandos

Hvað kallar maður áhugamál sem maður hefur stundað í meira en sextíu ár? Eitthvað sem fléttast saman við lífið þar til það verður hluti af því? Kannski nægir orðið „ástríða“ ekki til að lýsa því. Ef til vill mætti kalla það „ást“.
Ég heiti Fernando og er áttatíu ára ungur. Ég var rétt rúmlega 20 ára þegar ég rakst nánast fyrir tilviljun á vin minn sem kom oft í myllu föður míns. Ég man ekki hvernig við fórum að tala um það hvernig hann eyddi frítíma sínum. Þetta áhugamál var ekki sérlega algengt á þeim tíma, en átti brátt eftir að verða það. Og það átti eftir að heilla mig svo mikið að ég myndi stunda það alla ævi. Ég þáði því boð hans og fór með honum til að komast að því hvernig á að rækta býflugur.
Forvitnin er sannarlega þrautseig og þegar hún hefur kviknað er ómögulegt að slökkva hana. Ég var engin undantekning. Ég fór að kynna mér og lesa allt um býflugur og ræktun þeirra. Ég á enn margar af þessum bókum. Hver þeirra segir ólíka sögu, en um eitt eru þær allar sammála: málin. Með þessi nákvæmu mál að leiðarljósi smíðaði ég fyrstu býflugnabúin mín. Já, „mín“, því þegar maður býr eitthvað til með eigin höndum getur maður með sanni kallað það „sitt“.
Ég verð að viðurkenna að fyrstu árin voru ekki auðveld, því það er ekki fyrr en maður lokar bókunum sem námið hefst fyrir alvöru. Það er ekki svo auðvelt að safna hunangi úr búinu ef maður er ekki sérfróður um það. Maður þarf að þekkja aðferðirnar, árstíðirnar, hvernig vernda á búin fyrir rándýrum og steikjandi hita og læra hvenær plönturnar blómstra. Og umfram allt þarf maður að kynnast þeim sjálfum – býflugunum – sem er erfiðasti hlutinn. Í samfélagi þeirra er ekkert látið ráðast af tilviljun og ekkert skiptir þær meira máli en að verja fjölskylduna. Þær eru jafnvel reiðubúnar að færa mestu fórnina, sem fyrir okkur mannfólkið þýðir sársaukafulla stungu. Þær verja, annast og vernda; þegar öllu er á botninn hvolft eru þær ekki svo ólíkar okkur. Við vitum bæði hvað skiptir raunverulega máli.
Kannski er það ástæðan fyrir því að hunangið sem ég safna er yfirleitt handa fjölskyldunni minni. Konunni minni finnst gott að nota það í kökurnar sínar. Uppáhaldið mitt er crostata (baka) sem hún bakar með þykku lagi af hunangi og jarðarberja- eða apríkósusneiðum ofan á. Það má líka njóta þess beint af skeiðinni, jafnvel áður en farið er að sofa. Ég hef alltaf litla flösku af náttúrulegu, heimatilbúnu býlími við höndina, enn eina dýrmæta gjöf úr býflugnabúinu.
Konan mín hefur svo oft heyrt mig tala um býflugur að hún er sjálf orðin sérfræðingur. Dóttir mín ólst upp með mér og býflugunum. Kannski voru glósurnar sem ég byrjaði að skrifa fyrstu árin ætlaðar henni án þess að ég vissi það. Dóttir mín hefur alltaf hjálpað mér, en nú hefur hún ákveðið að læra enn meira. Hún bað mig um að kaupa hlífðarbúning fyrir býrækt og allan búnaðinn. Um daginn var hún stungin af býflugunum, en lét það ekki á sig fá því hún deilir sömu ástríðu og hefur drifið fjölskylduna okkar áfram árum saman. Að halda þeirri ástríðu lifandi er eina leiðin til að miðla henni til komandi kynslóða, svo að þær geti líka heillast af hinu einstaka lífi býflugnanna, sem hafa verið svo stór hluti af lífi okkar og verða það alltaf.
Höfundar:
Texti eftir Carlotta Fiore
Ljósmynd eftir Diego Rosselli


Risotto alla parmigiana með stökku guanciale og balsamikdressingu
Ofnbakað gramigna með osti
Handgerð panettoni
Settu saman þína eigin gjöf
Tilbúnar gjafir
Rödd Mariu Linu
Raddir Ceciliu og Denis
Rödd Mauru